Sunday, June 25, 2006

5 ára brúðkaupsafmælið

Við leigðum okkur bíl þann 23. júní og og fórum í Knuthenborg Safari park niðri á Lálandi til að halda upp á það að það eru heil 5 ár síðan við pússuðum okkur formlega saman. Ókum meðal alls konar dýra og gáfum öpum ávaxtakúlur og létum þá klifra á okkur....... gaman


Posted by Picasa

Tuesday, June 20, 2006

Musikalsk legestue

Strákarnir eru báðir í þessum tónlistarskóla og sækja tíma vikulega hjá þessum náunga, sem er kennarinn og skólastjórinn. Hann heitir Michael Shilling og er, að okkar mati alger snillingur. Að minnsta kosti njóta strákarnir þess í botn að fara þangað. Það er sungið og spilað á alls kyns hljóðfæri, sagðar sögur og leiknir margir leikir, allt mjög markvisst í átt að kenna takt og tóna en líka að tónlist er leikur, sköpun og ferli.


Posted by Picasa

Monday, June 05, 2006

Ástarfundur í Kaupmannahöfn

Við rákumst á Guðbjörgu Ingu og foreldra hennar í bænum í vor. Guðbjörg Inga var besti vinur Steins Kára á leikskólanum Leikgarði á Íslandi og kærleikar þeirra ristu svo djúpt að Steinn Kári bað föður Guðbjargar um hönd hennar eitt sinn er hann sótti hana á leikskólann. Ári eftir að leiðir skildu, áttu þau svo frábæran dag saman á Karnivali í Parken.


Posted by Picasa