Tuesday, July 18, 2006

Vinirnir í blokkinni

Steinn Kári, Andri Franz og Andri Dagur er stálheppnir að eiga allir heima í sömu blokkinni og geta leikið sér saman eins og þá lystir......
Andri Dagur og Steinn Kári í einkennisklæðum Nimbusbúa í sumar....
Tvær Nimbusfjölskyldur að grilla í Grøndalsparken. Posted by Picasa

Könguló

Steinn Kári kom auga á risastóra hrossaflugu á baðherbergisveggnum í morgun þegar hann sat á klósettinu og hrópaði: Mamma, komdu að sjá köngulóna. Þegar mamma kom inn og leit á flykkið uppi á vegg sagði barnið: Við flytjum bara mamma.....

Monday, July 10, 2006

Brúðkaup í Lúxemburg

Þá er enn ein pæjan í purufélaginu gengin í hnapphelduna, og að þessu sinni var það Hjördís sem gekk að eiga bóndason frá Lúxemburg, hann Alain. Pæjur skelltu sér í sveitina til þeirra í Canach og áttu yndislega og fjöruga daga með brúðhjónunum og fjölskyldunum þeirra. Tveggja daga veisluhöld, leikir, frábær matur og svo tjúttað við sundlaugina langt fram eftir nóttu.


Ekki laust við að beri á óléttu á stöku stað.....












Hjördís uppfyllti ósk sína og fékk að dansa brúðarvalsinn við sinn heittelskaða undir uppáhaldslaginu sínu..... Posted by Picasa