Nákvæmlega svona líður okkur hér í Danmörku. Sjá myndir.


Þá er enn ein pæjan í purufélaginu gengin í hnapphelduna, og að þessu sinni var það Hjördís sem gekk að eiga bóndason frá Lúxemburg, hann Alain. Pæjur skelltu sér í sveitina til þeirra í Canach og áttu yndislega og fjöruga daga með brúðhjónunum og fjölskyldunum þeirra. Tveggja daga veisluhöld, leikir, frábær matur og svo tjúttað við sundlaugina langt fram eftir nóttu.

Strákarnir eru báðir í þessum tónlistarskóla og sækja tíma vikulega hjá þessum náunga, sem er kennarinn og skólastjórinn. Hann heitir Michael Shilling og er, að okkar mati alger snillingur. Að minnsta kosti njóta strákarnir þess í botn að fara þangað. Það er sungið og spilað á alls kyns hljóðfæri, sagðar sögur og leiknir margir leikir, allt mjög markvisst í átt að kenna takt og tóna en líka að tónlist er leikur, sköpun og ferli.

Við rákumst á Guðbjörgu Ingu og foreldra hennar í bænum í vor. Guðbjörg Inga var besti vinur Steins Kára á leikskólanum Leikgarði á Íslandi og kærleikar þeirra ristu svo djúpt að Steinn Kári bað föður Guðbjargar um hönd hennar eitt sinn er hann sótti hana á leikskólann. Ári eftir að leiðir skildu, áttu þau svo frábæran dag saman á Karnivali í Parken.
