Steinunn og Hölli á neðri hæðinni eru svo dugleg að taka myndir og setja á netið, og vegna mikilla og ánægjulegra samverustunda í síðsumarsólinni erum margar skemmtilegar myndir af strákunum á síðunni þeirra...... sjá: http://www.andridagur.barnaland.is/album/393070
Karli Orra Brekasyni finnst gott að borða ís. Reyndar finnst honum gott að borða allt. Honum finnst líka líka gaman að spila á gítar og fikta í tölvunni, alveg eins og pabba. Steinn Kári ("Daddi") er samt stærsta átrúnaðargoðið.
Frændurnir skemmtu sér konunglega í tívolum, dýragörðum og alls kyns leikvöllum og skemmtigörðum. Sól og hiti allan tímann og erfitt að segja bless......
Steinn Kári, Andri Franz og Andri Dagur er stálheppnir að eiga allir heima í sömu blokkinni og geta leikið sér saman eins og þá lystir...... Andri Dagur og Steinn Kári í einkennisklæðum Nimbusbúa í sumar.... Tvær Nimbusfjölskyldur að grilla í Grøndalsparken.