Stúlkan okkar fallega og vel skapaða fæddist þann 3. júlí klukkan 21.18. Átti að koma með keisaraskurði hálfum mánuði síðar en mætti á svæðið okkur til mikillar gleði og ánægju aðeins fyrr. Hún var 13 merkur og 50 cm.
Héldum í reisu með allan barnaskarann og Elísabetu. Stoppuðum eina nótt í Vatnshorni hjá Pabba, Sjöfn og Sigga og fjórar í Fjalli hjá Heiðu, Adda, Benna og Þórhalli sjarmatrölli. Þórhallur fór í fyrsta rólótúrinn og fannst hreint ekki leiðinlegt.
Hérna eru myndir úr frábæru sumarfríi okkar á Tyrklandsströnd. Fórum með foreldrum og systkinum Breka og eyddum 2 vikum á okkar eigin smá sneið af Paradís.
Valdimar, Hanna Þóra og Aðalsteinn komu í heimsókn til grasekkjunnar og við áttum yndislega daga í vorblíðunni. Karl Orri sýndi hvað hann er mikið efni í stóra bróður með mikilli væntumþykju og umhyggju fyrir Valdimar.