Thursday, August 18, 2005

18. ágúst

Við Steinn Kári fórum með Grönærterne í heimsókn til skógarhópsins en það er deild á leikskólanum sem hefur aðsetur uppí sveit. Þau fara á hverjum morgni frá Lindevang í rútu um 50 mínútna leið áleiðis til útsveita Köge. Þar hafa þau smáskika og lítið skýli sem leikskólinn hefur leigt af bónda þar á bæ. Þar leika þau sér úti allan daginn ársins hring, nánast sama hvernig viðrar. Þau borða mas matinn sinn úti og alla miðvikudaga elda þau saman á opnu eldstæði.

Þau hafa nánast engin leikföng utan nokkurra tuga ölkassa sem virka eins og risastórir legokubbar. Þess í stað hanga þau í trjánum og hlaupa um í grasinu, eða moka flórinn... (tjah hið síðastalda er ekki alveg satt en mig vantaði eitt atriði uppá þrítalninguna). Það sést líka á krökkunum. Þau eru sterk, stæðileg og það sem einhver myndi kalla: baldin.

Það var mjög gaman. Steinn og Nidda sátu saman í rútunni og léku sér saman allan daginn. (Guðbjörg Inga er nú samt kærastan hans að eigin sögn).

Steinn: “Mamma, að spíse er að borða!”


16. ágúst
Fyrsti dagurinn hjá Steini Kára á Lindevang börnehave. Hann er langyngstur af 13 börnum á Grönærterne deildinni, sem er í risinu á stóru húsi með leikskóla og vöggustofu. Systkynin Saqi(5) og Nidda(4) eru voða góð við hann, leiða hann um og sýna honum allt og hafa hann með í leiknum. Svo eru mamma, pabbi og Karl Orri ekki langt undan.

Steinn krefst þess núna að allt barnaefni sem hann horfir á í sjónvarpinu sé á dönsku, “af því við erum í Danmörku”. Lætur okkur stilla Disney ævintýra DVD diskinn sinn á dönsku og horfir aftur og aftur á “Den venlige drage” og “Mickey og bönnestagen”.

Karl Orri er farinn að velta sér af maganum á bakið og svo veltir hann sér og snýr og getur þannig fært sig úr stað og fengið nýtt sjónarhorn á tilveruna. Hlær og skríkir sem aldrei fyrr og vill helst sitja uppréttur eins og hinir, þó hann valdi því ekki enn.

15. ágúst
Danir eru svolítið uppteknir af því hvað Íslendingar eru að kaupa mikið... Amk þrír hafa spurt okkur: “Nú, þið eruð Íslendingar! Hvað ætlið þið að kaupa næst?” og eiga þá við kaupin á Illum og Magasin. Svo velta þeir fyrir sér hvaðan peningarnir koma og við brosum góðlátlega og ypptum öxlum. Danir eru svo miklir fjármálapúritanar að þeir þekkja ekki skuldsetta yfirtöku og veigra sig við að setja sig inní slíkt.

Á laugardögum fáum við alltaf ótrúegt magn af auglýsingapésum frá helstu stórverslunum hér í kring, Nettó, Fakta, Super-Brugsen, Fötex ofl. (reyndar fáum við líka pésa frá verslunum sem við höfum ekki fundið ennþá og mas frá þýskum búðum, rétt handan landamæranna með landakorti und alles). Við ímyndum okkur að helsta dægrastytting danskra fjölskyldna á laugardagskvöldum sé að lesa pésana spjaldanna milli og skipuleggja innkaup næstu viku. Við höfum reynt að setjast nokkrum sinnum niður og skipuleggja okkar innkaup eins og fátækir námsmenn eiga að gera, en gefist upp og skýlt okkur á bakvið þá staðreynd að við séum ennþá í fríi.

Skruppum inní HM á strikinu og þar virðist annar hver viðskiptavinur tala íslensku. Einhver sagði mér að einungis Japanir kaupi meira í þessari einstöku búð en Íslendigar. Gat verið, enn eitt næstumþvíheimsmetið og þá ekki einusinni miðað við höfðatölu...

No comments: