Steinn Kári var búinn að bíða í að minnsta kosti tvo mánuði eftir stóra deginum, og telja dagana. Vaknaði svo klukkan 05.00 um morguninn af tómum spenningi en stóð sig með mikilli prýði að vanda og tók á móti gestunum af sínum alkunna höfðingsskap og prúðmennsku. Öll íslensk börn í Nimbusparken komu að sjálfsögðu ásamt foreldrum sínum en þar að auki komi Ólíver og Benjamín með foreldrum sínum Ástu Björgu og Begga, Tómas og Vala með sínum foreldrum sem eru Ragna Sara og Stebbi, og svo kom Dísa Þormóðs , Baldvin og Sara og loks hinn færeyski Markús, sem er góður vinur Steins úr Músíkskólanum, og foreldrar hans.
No comments:
Post a Comment