Saturday, July 30, 2005

júlí 2005

30. júlí

Dísa og Þóra flugu í gær til Noregs til að vera við brúðkaup. Við ákváðum að gera okkur dagamun, leigja bíl og bruna í Legoland. Það hefur aldrei rignt eins mikið á einum degi á Sjálandi í ágústmánuði síðan mælingar hófust. Við létum engan bilbug á okkur finna og ókum í gegnum fossinn. Leit á köflum meira út fyrir að vera rafting... Þegar við komum á staðinn, byrjuðum við á að klæða alla í regngallana sína. Að því loknu skall á Bongóblíða. Elísabetu fannst x-treme racers rússíbaninn skástur, Steini fannst tónlistargosbrunnurinn skemmtilegastur, Benna fannst mest til timburrússíbanans koma.

Börn og fullorðnir alsæl, ókum heim í gegnum danska akra í kvöldsólinni.


27. júlí

Dísa, Þóra, Elísabet, Heiða og Benni komu í dag. Nóg svefnpláss í Nimbusparken.

Systurnar þrjár saman í fyrsta skipti í útlöndum síðan í Svíþjóð fyrir hmmmm.... 25 árum eða svo. Gaman. Skoðum nánasta umhverfi saman, Benni og Steinn hnoðast miskunnarlaust á Elísabetu.

24. júlí

Fyrstu dvalargestirnir komu í heimsókn í dag: Ásgeir, Dísa, Tómas Jökull og Ingibjörg kíktu við uppfull af skógarflóm eftir útilegu á sunnanverðu Sjálandi. Og Ásgeir er kóngurinn í skógarflóalandi. Skelltum upp tjaldborðinu þeirra og héldum veislu! Röltum með barnaskarann og skoðuðum antikbúðir og ýmislegt í nágrenni Nörreport.


21. júlí

Löbbuðum niðrí ráðhús og skráðum okkur “inní landið” til að fá danska kennitölu. Góða konan fann náttúrulega gömlu kennitöluna hans Breka frá því hann var hér á sínum yngri árum, 1975-78. Uppgötvuðum okkur til yndisauka að skjaldarmerki Friðriksbergs samanstendur af þremur íslenskum fálkum og íslensku fánalitunum.

Fyrsta heimsóknin: Birgitta og dóttursynirnir Jón og Böðvar litu við á heimleið sinni eftir dvöl uppí sveit. Snæddum saman hádegisverð á gólfinu inní stofu og fórum svo í dýragarðinn þar sem Nimbusparkenbúar keyptu sér árskort. Kvöddum þau með virktum

20. júlí

Fórum heim í fyrsta skipti: Nimbusparken 9, 2000 Frederiksberg, DK. Flott íbúð, vítt til veggja, allt hvítmálað og fínt, við fyrstu íbúarnir í “rauða múrsteinshúsinu” (SKB)

Þremur pallettum af búslóð var skóflað upp á fjórðu hæð (sem Danir kalla svo skemmtilega þriðju hæð). Guð launi fyrir lyftuna og meðhjálparana...

Flugferðin hefur ekki gert hóstanum hans Karls Orra gott og því fórum við með hann á læknavaktina. Vorum imponeruð (sko fyrsta danska slettan) af því hve skipulagið var gott og hve lítil yfirbygging var. Lækavaktin í Kópavogi getur greinilega ýmislegt lært. Karl Orri er með kvashósta og eigum við að gefa honum ventolin næstu daga.

19. júlí

Eftir hektískar vikur tiltektar og frágangs lögðum við loks af stað til Danmerkur. “Fyrst keyrði flugvélin hratt, hratt, hratt og svo fór hún upp, upp, upp og yfir skýin. Síðan vorum við komin til Danmerkur” (SKB). Á leiðinni kynntumst við Diljá án þess að vita að hún væri bróðursonardóttir Gullu sem hafði boðist til að hýsa okkur fyrstu nóttina í drottningarinnar Kaupinhöfn.

Gulla og Óli tóku ótrúlega vel á móti okkur með opin faðminn, heita súpu og kallt öl. Þar hittum við fyrir Diljá og foreldra hennar, Bjarna og Hörpu.

No comments: