Í gær var sommerfest á Lindevang leikskólanum. Boðið var uppá 3. metra langa köku, mat sem foreldrar medbragte og leiki sem krakkarnir höfðu undirbúið. Steinn Kári og hinir á grønærterne deildinni máluðu dósir sem menn gátu reynt að plaffa niður með boltum. Einnig var hægt að veiða plastfiska úr stórum bala eða grafa eftir gulli í drullipolli. Allstaðar voru verðlaunin hin sömu: þrúgusykursstöng með ávaxtabragði. Mjög upplífgandi. Ennfremur gátu börnin fengið andlitsmálningu. En þar lenti Steina einmitt í fyrstu tungumálaerfiðleikum sínum hingað til, þegar Steinn settist í stólinn og bað um að fá að verða eins og úlfvaldi. Nú voru góð ráð dýr og Steina fletti upp í orðabók heilans og fann út að úlfvaldi hlyti að vera kamel. Góða konan varð hvumsa og sagði að þeta væri í fyrsta sinn sem einhver bæði um það. Ekki varð Steina minna hvumsa þegar að konan málaði karamellur á kinnar Steins Kára. Þá hafði semsagt kamel skilist sem karamel. Þessu var fljótlega kippt í lag og að endingu leit Steinn Kári út eins og... ja, Steinn Kári, bara skítugur. Hann var himinnlifandi með nýtt útlit sitt og labbaði um eins og úlfvaldi í miðri sommerfest.
Fórum í gönguferð um Frederiksberg have í dag þar sem við héldum að dagur Hásés væri í dag. Hann er ekki fyrr en eftir viku. Maja Sig kom í heimsókn eftir að hafa skilað Hjalta sínum af sér í flugvélina.
No comments:
Post a Comment