Mikið og margt gerst og verður rakið í stórum dráttum í skeytastíl:
Sighvatur og Auður kíktu í kaffi og meððí eina síðdegisstund.
Breki fór í fyrsta prófið í skólanum mánudaginn 17. október.
Birgitta kom í heimsókn og gisti í eina nótt á leið í stórmenningarferð til Ítalíu.
Svo kom Stína amma í heimsókn.Maja og Eyvindur kíktu líka við. Eyvindur var með uppistand og læti og stóð sig frábærlega á Comic Zoo á mánudagskvöldið.
á leið til Lubeck þar sem hún opnaði sýningu með pompi, pragt og prelátum. Maja Sig og Eyvindur kíktu í heimsókn og gistu líka.
Steins þáttur Kára:
Þetta er saga fyrir Lárus frænda og hún hljómar svona:
Einu sinni var lítill strákur og hann samdi um að fara í bað. (Og það er mikið í sögunni [innskot höfundar].) Hann var svolítið gamall, hann var 5 ára. (Hún er lengi að byrja, sagan [innskot höfundar].) Svo fékk hann aldrei mjólk. Hann var lengi í baðinu, svona lengi ( 10 puttar). Svo fékk hann svona armband á hendina.
No comments:
Post a Comment