Sunday, September 18, 2005

18.september

Á fimmtudaginn tók vestanvindurinn við af austanvindinum, það gerði rok og haustið kom eins og hendi væri veifað. Í gær afrekuðum við að bjóða íslenskum bekkjarsystkinum(systrum) Breka í bröns sem var reglulega gaman.



Í dag kom afi Kalli í örskotsheimsókn á leið heim af ráðstefnu í Turku. Hann kom líka á við á fimmtudaginn á leiðinni þangað. Brúnirnar lyftust mikið á Steini Kára og Karli Orra og sleppt sá fyrrnefndi ekki augum og hendi af afa sínum.



Saga fyrir Elísabetu eftir SKB:

Einu sinni var strákur sem gat ekki klifrað uppí tré. Hann var svo leiður af því hann átti tréð. Svo kom mamma hans og svo kom pabbi hans og gong-gang-gæ. Svo gerðist svona bara... Hann náði í kertisstubb og setti hann aftur í gluggann. Þá stækkaði hann svo að hann gat farið upp í tréð. Þá leið honum bara rosalega vel. Það var spæta í trénu sem sagði gong gong gong. Spætan var að leita að unganum sínum. Hún leitaði og svo fann hún hann. Margar spætur sögðu: "digg dogg digg dogg". Svo datt Freyjugata badadong. Lestu söguna aftur.



Saga fyrir hana ömmu mína eftir SKB:

Kæra amma, ég ætla að semja söguna þína seinna þar sem ég er svo þreyttur núna.

No comments: