Saga fyrir afa eftir SKB:
Kæri afi, Einu sinni var strákur sem hét Núbídú. Hann var fúll á svipinn af því að hann vildi ekki fara í bað. Hann vildi það ekki af því að hann vildi það ekki. Svo setti pabbi hann í heitt bað. Núbídú vildi bara fá mjólk. Eftir baðið var Núbídú hreinn og þeir fóru í ferðalag til Íslands, á Freyjugötu. Þeir fóru í flugvélinni og þegar þeir komu út úr skýjunum þá voru þeir komnir til Íslands. Þá var Núbídú glaður og vildi alltaf fara í bað af því að pabbi hans setti hann í bað.
Saga fyrir Dísu sem heitir Kúbídú-sagan:
Kæra Dísa, Þessi saga er um Púbbídú sem er snjall og góður strákur. Hann vill alltaf fara í bað. Hann er risastór og vill alltaf fara sjálfur í bað. Hann leikur sér með baðdótið. Hann á mikið af baðdóti. Hann fær alltaf verðlaun á mörgum dögum. Í dýragarðinum og húsdýragarðinum og alls staðar. Dag einn kom kínverskur skuggi til hans. Hann var með sverð og þau þurftu að berjast við hann. Þeir skáru hann í marga bita og gátu borðað hann öll. Það var töfrabragð af honum. Svo hlógu allir og sögðu: "Hann er skorinn, hann er skorinn." Svona endar þessi saga.
Saga fyrir hana Þóru:
Kæra fína góða Þóra, Við áttum blóm og svo fengum við annað blóm að láni. Annað blómið er gult, það var gefins. Hitt blómið er rautt. Og svo eigum við líka eina basilíku. Á næturnar þegar við förum að sofa kemur skuggi og tekur blómin okkar og basilíkuna. Á morgnana leitum við að þeim og finnum þau og þá át hann þau ekki. Þetta var saga um okkur.
No comments:
Post a Comment