Saturday, September 03, 2005
3.september
Í dag var Háséskrúðganga niður Frederiksbergs Allé í skugga pólitískra hneykslismála. Kúbanska stúlkan sem vann alheimssamkeppnina um besta ævintýrið í anda Hásés fékk ekki fararleyfi og dóttir sendiherra Kúbu tók við verðlaununum í hennar stað. Og Tíbetarnir sem voru rétt fyrir aftan Kínverjana í skrúðgöngunni voru með alls kyns pólitískar skírskotanir. Allt þetta fór þó gersamlega framhjá okkur og við sáum enga pólitík í skrúðgöngunni, einungis fegurð. Svona getur maður verið blindur. Við skemmtum okkur ævintýralega vel við horfa á alls kyns furðuskeppnur úr ævintýrum Hásés lifna við og skríða, ganga, dansa og fljúga framhjá okkur í öllum litum, stærðum og gerðum. Hver og einn táknaði persónu úr einhverri sögunni. Þarna voru nokkrir Hans klaufar, snædrottning, pabbi sem veit allt best, dragdrottningin á bauninni, Þumalína, nokkrir tugir lítilla fallegra andarunga og einn stór og ljótur, hafmeyja, alvöru sótarar, furðufiskar, drekar og næturgalar. Reyndar var enginn klæðalaus keisari...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment