Monday, August 29, 2005

29.ágúst

Í dag er sumarfríið opinberlega búið. Fyrsti dagurinn í skólanum... Þetta er að sjálfsögðu viðbrigði, en leggst bara vel í mig. Enn sem komið er er þetta einungis intróvikan. Hinn harði veruleiki byrjar ekki fyrr en í næstu viku.

Í gær var notað tækifærið þar sem Maja er á bíl að fara í pílagrímsferð til Kagså. Einhvernveginn hefur allt minnkað á þessum 30 árum eða svo síðan ég bjó þarna nema fjöldi Íslendinga. Ég held ég sé ekkiað ýkja þegar ég ímynda mér að um 70% nafna á póstkössum þar hafi verið íslensk.

Það kom mér í opna skjöldu hvað allt var lítið þarna. Stóra Brugsen brekkan var hvorki brött né löng. Það er ótrúlegt að Þeba hafi ekki getað stokkið af vagninum á sínum tíma...

Hjörtur og Xenia komu í mat. Við Steina elduðum ekta íslenskan hrygg með öllu tilheyrandi nema rabarbarasultu. Við uppgötvuðum að þetta var í fyrsta skipti í okkar 16 ára sambúðarsögu sem við eldum hrygg. Líklega er það hrós í nappagöt foreldra okkar. Þeir hafa alla tíð séð um þetta fyrir okkur.

Saturday, August 27, 2005

27.ágúst

Í gær var sommerfest á Lindevang leikskólanum. Boðið var uppá 3. metra langa köku, mat sem foreldrar medbragte og leiki sem krakkarnir höfðu undirbúið. Steinn Kári og hinir á grønærterne deildinni máluðu dósir sem menn gátu reynt að plaffa niður með boltum. Einnig var hægt að veiða plastfiska úr stórum bala eða grafa eftir gulli í drullipolli. Allstaðar voru verðlaunin hin sömu: þrúgusykursstöng með ávaxtabragði. Mjög upplífgandi. Ennfremur gátu börnin fengið andlitsmálningu. En þar lenti Steina einmitt í fyrstu tungumálaerfiðleikum sínum hingað til, þegar Steinn settist í stólinn og bað um að fá að verða eins og úlfvaldi. Nú voru góð ráð dýr og Steina fletti upp í orðabók heilans og fann út að úlfvaldi hlyti að vera kamel. Góða konan varð hvumsa og sagði að þeta væri í fyrsta sinn sem einhver bæði um það. Ekki varð Steina minna hvumsa þegar að konan málaði karamellur á kinnar Steins Kára. Þá hafði semsagt kamel skilist sem karamel. Þessu var fljótlega kippt í lag og að endingu leit Steinn Kári út eins og... ja, Steinn Kári, bara skítugur. Hann var himinnlifandi með nýtt útlit sitt og labbaði um eins og úlfvaldi í miðri sommerfest.
Fórum í gönguferð um Frederiksberg have í dag þar sem við héldum að dagur Hásés væri í dag. Hann er ekki fyrr en eftir viku. Maja Sig kom í heimsókn eftir að hafa skilað Hjalta sínum af sér í flugvélina.

Tuesday, August 23, 2005

23. ágúst

Steinn Kári búinn að vera í tvo daga einn í leikskólanum, frá tíu til tvö. Hann stendur sig með mikilli prýði, þurfti einu sinni í dag á stuðningi að halda og fékk hann í fangi Mortens, annars kennarans síns, sem er svona 35 ára rólegheitanáungi, hinn kennarinn hans heitir Hanne og er fjörleg kona á besta aldri. Fórum í dýragarðinn á leiðinni heim úr leikskólanum og sáum fíl og seli og ljón og hegra og úlfalda.

Steinn áður en hann sofnaði í kvöld: -Mamma átt þú engan skóla? Mamma: nei, en þegar Kalli er orðinn nógu stór til að fara í skóla þá fer ég líka og þá verðum við öll í skóla. Steinn (hugsi)....það tekur tíma að stækka....þegar ég er orðinn stór þá verð ég ekki í skóla. Mamma: Ertu búinn að ákveða hvað þú ætlar að gera? Steinn: Ég ætla að eiga skóla og vera þar einn með Hanne og stundum líka hinum krökkunum

Thursday, August 18, 2005

18. ágúst

Við Steinn Kári fórum með Grönærterne í heimsókn til skógarhópsins en það er deild á leikskólanum sem hefur aðsetur uppí sveit. Þau fara á hverjum morgni frá Lindevang í rútu um 50 mínútna leið áleiðis til útsveita Köge. Þar hafa þau smáskika og lítið skýli sem leikskólinn hefur leigt af bónda þar á bæ. Þar leika þau sér úti allan daginn ársins hring, nánast sama hvernig viðrar. Þau borða mas matinn sinn úti og alla miðvikudaga elda þau saman á opnu eldstæði.

Þau hafa nánast engin leikföng utan nokkurra tuga ölkassa sem virka eins og risastórir legokubbar. Þess í stað hanga þau í trjánum og hlaupa um í grasinu, eða moka flórinn... (tjah hið síðastalda er ekki alveg satt en mig vantaði eitt atriði uppá þrítalninguna). Það sést líka á krökkunum. Þau eru sterk, stæðileg og það sem einhver myndi kalla: baldin.

Það var mjög gaman. Steinn og Nidda sátu saman í rútunni og léku sér saman allan daginn. (Guðbjörg Inga er nú samt kærastan hans að eigin sögn).

Steinn: “Mamma, að spíse er að borða!”


16. ágúst
Fyrsti dagurinn hjá Steini Kára á Lindevang börnehave. Hann er langyngstur af 13 börnum á Grönærterne deildinni, sem er í risinu á stóru húsi með leikskóla og vöggustofu. Systkynin Saqi(5) og Nidda(4) eru voða góð við hann, leiða hann um og sýna honum allt og hafa hann með í leiknum. Svo eru mamma, pabbi og Karl Orri ekki langt undan.

Steinn krefst þess núna að allt barnaefni sem hann horfir á í sjónvarpinu sé á dönsku, “af því við erum í Danmörku”. Lætur okkur stilla Disney ævintýra DVD diskinn sinn á dönsku og horfir aftur og aftur á “Den venlige drage” og “Mickey og bönnestagen”.

Karl Orri er farinn að velta sér af maganum á bakið og svo veltir hann sér og snýr og getur þannig fært sig úr stað og fengið nýtt sjónarhorn á tilveruna. Hlær og skríkir sem aldrei fyrr og vill helst sitja uppréttur eins og hinir, þó hann valdi því ekki enn.

15. ágúst
Danir eru svolítið uppteknir af því hvað Íslendingar eru að kaupa mikið... Amk þrír hafa spurt okkur: “Nú, þið eruð Íslendingar! Hvað ætlið þið að kaupa næst?” og eiga þá við kaupin á Illum og Magasin. Svo velta þeir fyrir sér hvaðan peningarnir koma og við brosum góðlátlega og ypptum öxlum. Danir eru svo miklir fjármálapúritanar að þeir þekkja ekki skuldsetta yfirtöku og veigra sig við að setja sig inní slíkt.

Á laugardögum fáum við alltaf ótrúegt magn af auglýsingapésum frá helstu stórverslunum hér í kring, Nettó, Fakta, Super-Brugsen, Fötex ofl. (reyndar fáum við líka pésa frá verslunum sem við höfum ekki fundið ennþá og mas frá þýskum búðum, rétt handan landamæranna með landakorti und alles). Við ímyndum okkur að helsta dægrastytting danskra fjölskyldna á laugardagskvöldum sé að lesa pésana spjaldanna milli og skipuleggja innkaup næstu viku. Við höfum reynt að setjast nokkrum sinnum niður og skipuleggja okkar innkaup eins og fátækir námsmenn eiga að gera, en gefist upp og skýlt okkur á bakvið þá staðreynd að við séum ennþá í fríi.

Skruppum inní HM á strikinu og þar virðist annar hver viðskiptavinur tala íslensku. Einhver sagði mér að einungis Japanir kaupi meira í þessari einstöku búð en Íslendigar. Gat verið, enn eitt næstumþvíheimsmetið og þá ekki einusinni miðað við höfðatölu...

Friday, August 12, 2005

12.ágúst

12. ágúst
Í gær, þremur dögum eftir að við skiluðum formlega inn umsókn fékk Steinn Kári bréf í pósti þess efnis að hann gæti byrjað á Lindevang leikskólanum eftir helgi. Í dag skoðuðum við slotið. Það bliknar náttúrulega allt í samanburði við umönnunina sem hann fékk hjá stjúp-ömmu sinni á Leikgarði, en sjáum hvað setur.

Steinn Kári settist náttúrulega strax niður og fór að leika sér með allt dótið, langþreyttur á að fá ekki að leika sér nægilega...


11. ágúst
Við Heiða erum búnar að gera ótrúlega margt með strákunum okkar undanfarna daga, rannsaka garðana hér í Kaupmannahöfn, fara á ströndina á Amager (leituðum frekar lengi að Amager strandpark eins og lýst var í bókinni fínu, bara til að komast að því eftir klukkutíma göngu í heitri hádegissólinni að það var ekki búið að opna hann!). Erum frekar sybbnar eftir marga daga í röð þar sem strákarnir vakna alltaf stálslegnir klukkan 6:15á morgnanna, þ.e.a.s. þegar gröfukallarnir mæta hér á lóðina og fara að grafa skurði og malbika og gera svona ýmislegt ómótstæðilegt fyrir börn undir 4 ára. Þetta er búin að vera frábær heimsókn, ómetanlegt fyrir okkur að þau séu búin að sjá umhverfið okkar og upplifa þetta með okkur.

10. ágúst
Breki flaug heim 8. - 10. til að stússast í fjármálalæsisdótaríinu sínu. Það skyldi þó aldrei vera að hugsanlega kanski verði bara eitthvað úr þessu eftir allt saman. Bæði í gríni og alvöru burðaðist Breki heim með 4 pakka af Cheeriosi og einnota rykmoppur.

Rykmoppur höfum við ekki séð hér og Cheerios er víst bannað þar sem það er vítamínbætt. Hins vegar er Honey Nut Cheerios leyft ásamt Cocoa Puffs og öllu öðru sætu sulli. Það er nefnilega ekki flutt inn sem matur, heldur sælgæti. “Rómverjar eru klikk” (Steinríkur). Það er leitun að morgunkorni hér sem ekki inniheldur óhemjumagn af sykri.

Thursday, August 04, 2005

4. ágúst

4. ágúst
Dísa, Þóra og Beta halda heim, kveðjum með trega, og loksins er komin langþráð sól á vestursvalirnar víðfeðmu. Heiða og Benni verða lengur og við Heiða verðum einstæðar þriggja barna mæður þegar Breki skreppur heim eftir helgi. Búin að fjárfesta í bókinni Börnenes Köbenhavn og alles...

Steinn spyr pabba sinn “...erum við þá núna dönsk?”


2. ágúst
Hersingin skellti sér í eina rauða S lest á Bakken að undanskildum Breka sem fór að endurgjalda greiðann og bera húsgögn fyrir nýja Kaupmannahafnarbúa af íslenskum uppruna. Mikil læti á Bakken, Karl Orri svaf betur en nokkru sinni fyrr í öllum hamaganginum. Beta og Þóra voru hugaðastar og létu sveifla sér og snúa ógeðslega hátt.

Saturday, July 30, 2005

júlí 2005

30. júlí

Dísa og Þóra flugu í gær til Noregs til að vera við brúðkaup. Við ákváðum að gera okkur dagamun, leigja bíl og bruna í Legoland. Það hefur aldrei rignt eins mikið á einum degi á Sjálandi í ágústmánuði síðan mælingar hófust. Við létum engan bilbug á okkur finna og ókum í gegnum fossinn. Leit á köflum meira út fyrir að vera rafting... Þegar við komum á staðinn, byrjuðum við á að klæða alla í regngallana sína. Að því loknu skall á Bongóblíða. Elísabetu fannst x-treme racers rússíbaninn skástur, Steini fannst tónlistargosbrunnurinn skemmtilegastur, Benna fannst mest til timburrússíbanans koma.

Börn og fullorðnir alsæl, ókum heim í gegnum danska akra í kvöldsólinni.


27. júlí

Dísa, Þóra, Elísabet, Heiða og Benni komu í dag. Nóg svefnpláss í Nimbusparken.

Systurnar þrjár saman í fyrsta skipti í útlöndum síðan í Svíþjóð fyrir hmmmm.... 25 árum eða svo. Gaman. Skoðum nánasta umhverfi saman, Benni og Steinn hnoðast miskunnarlaust á Elísabetu.

24. júlí

Fyrstu dvalargestirnir komu í heimsókn í dag: Ásgeir, Dísa, Tómas Jökull og Ingibjörg kíktu við uppfull af skógarflóm eftir útilegu á sunnanverðu Sjálandi. Og Ásgeir er kóngurinn í skógarflóalandi. Skelltum upp tjaldborðinu þeirra og héldum veislu! Röltum með barnaskarann og skoðuðum antikbúðir og ýmislegt í nágrenni Nörreport.


21. júlí

Löbbuðum niðrí ráðhús og skráðum okkur “inní landið” til að fá danska kennitölu. Góða konan fann náttúrulega gömlu kennitöluna hans Breka frá því hann var hér á sínum yngri árum, 1975-78. Uppgötvuðum okkur til yndisauka að skjaldarmerki Friðriksbergs samanstendur af þremur íslenskum fálkum og íslensku fánalitunum.

Fyrsta heimsóknin: Birgitta og dóttursynirnir Jón og Böðvar litu við á heimleið sinni eftir dvöl uppí sveit. Snæddum saman hádegisverð á gólfinu inní stofu og fórum svo í dýragarðinn þar sem Nimbusparkenbúar keyptu sér árskort. Kvöddum þau með virktum

20. júlí

Fórum heim í fyrsta skipti: Nimbusparken 9, 2000 Frederiksberg, DK. Flott íbúð, vítt til veggja, allt hvítmálað og fínt, við fyrstu íbúarnir í “rauða múrsteinshúsinu” (SKB)

Þremur pallettum af búslóð var skóflað upp á fjórðu hæð (sem Danir kalla svo skemmtilega þriðju hæð). Guð launi fyrir lyftuna og meðhjálparana...

Flugferðin hefur ekki gert hóstanum hans Karls Orra gott og því fórum við með hann á læknavaktina. Vorum imponeruð (sko fyrsta danska slettan) af því hve skipulagið var gott og hve lítil yfirbygging var. Lækavaktin í Kópavogi getur greinilega ýmislegt lært. Karl Orri er með kvashósta og eigum við að gefa honum ventolin næstu daga.

19. júlí

Eftir hektískar vikur tiltektar og frágangs lögðum við loks af stað til Danmerkur. “Fyrst keyrði flugvélin hratt, hratt, hratt og svo fór hún upp, upp, upp og yfir skýin. Síðan vorum við komin til Danmerkur” (SKB). Á leiðinni kynntumst við Diljá án þess að vita að hún væri bróðursonardóttir Gullu sem hafði boðist til að hýsa okkur fyrstu nóttina í drottningarinnar Kaupinhöfn.

Gulla og Óli tóku ótrúlega vel á móti okkur með opin faðminn, heita súpu og kallt öl. Þar hittum við fyrir Diljá og foreldra hennar, Bjarna og Hörpu.